Fræðsla og forvarnir

Fræðsla og forvarnir > Kynsjúkdómar > Greinar > Flatlús
Flatlús
Smitleiðir Flatlús smitar helst við nána snertingu, s.s. við kynmök. Ef flatlús greinist þarf ætíð að athuga hvort um aðra kynsjúkdóma er að ræða hjá viðkomandi og rekkjunautum hans. Flatlús getur einnig borist af nærfötum og sængurfatnaði sé ekki þvegið nægilega vel. Smit getur einnig átt sér stað á sólbaðsstofum ef bekkir eru ekki vel þrifnir.

Einkenni Þegar lúsin sýgur blóð ertist húðin. Þetta veldur kláða. Hann er mestur í kringum kynfærin en getur komið á aðra staði þar sem lúsin þrífst. Kláðinn kemur oft nokkrum vikum eftir smit. Nitin klekst út á 5–10 dögum en skelin verður eftir og er oft ógerningur að sjá hvort um er að ræða tóma skel eða nit.

Greining Yfirleitt þarf læknir að skoða viðkomandi til að greina sjúkdóminn og einnig til að taka sýni vegna annarra kynsjúkdóma sem oft eru til staðar samtímis. Flatlús er greind með því að sjá lifandi lús eða nit á hári.

Meðferð Áburður gegn lús og nit er borinn á alla hærða staði nema hársvörð og er síðan þveginn af eftir 12 klukkustundir. Meðferðin er endurtekin eftir eina viku. Ef um flatlús er að ræða á augnhárum þarf sérstaka áburði sem læknir gefur. Flatlús getur lifað í u.þ.b. 2 sólarhringa án næringar, t.d. í sængurfötum, sé hún í hlýju umhverfi.

Efni fengið af heimasíðu Landlæknis birt með góðfúslegu leyfi.


  • Greinar
  • Spurt og svarað
Þriðjudagurinn 7. agúst 2007
Almennt um kynsjúkdóma

Hvað er kynsjúkdómur? Sjúkdómar sem smita við samfarir nefnast kynsjúkdómar. Smit á sér oftast stað við beina snertingu slímhúða. Sýklar sem valda kynsjúkdómum lifa einungis við líkamshita og deyja utan líkamans. Allir vita um tilvist kynsjúkdóma en fáir tala um þá. Fordómar gagnvart kynsjúkdómum eru útbreiddir og ...

Meira