Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur
Cerazette
Innihaldsefni: Desogestrelum 75 microg.
Umfjöllun: Cerazette er gestagentafla sem inniheldur prógestagenið desógestrel. Cerazette hentar best konum sem eru með barn á brjósti og konum sem geta ekki eða vilja ekki nota östrógen.
Getnaðarvörn lyfsins byggist fyrst og fremst á því að komið er í veg fyrir egglos. Jafnframt hafa hormónin áhrif á slímmyndun í leghálsinum þannig að sæðisfrumur komast síður upp í legið og frjógvað egg nær síður festu í slímhúð legsins.
Notkun: Hvert spjald inniheldur 28 töflur. Fyrsta taflan er tekin á fyrsta degi tíðablæðinga (má vera á 2.-5. degi). Tekin er sú tafla sem svarar til viðeigandi vikudags. Síðan á að taka samfellt 1 töflu daglega án tillits til hugsanlegra blæðinga. Töflurnar á að taka á sama tíma sólarhringsins þannig að alltaf líði 24 klst. milli töku tveggja taflna. Þegar spjaldið klárast er strax byrjað á næsta spjaldi (ekkert töfluhlé).
Ef verið er að skipta yfir í Cerazette frá annarri hormónagetnaðarvörn þá er fyrsta taflan tekin strax næsta dag eftir að hitt töfluspjaldið klárast eða getnaðarvarnarhringur eða –plástur er fjarlægður, án þess að hlé sé gert.
Hvenær veitir Cerazette öryggi: Æskilegt er að önnur getnaðarvörn sé notuð samhliða inntöku taflnanna fyrstu 7 dagana.
Ef tafla gleymist: Getnaðarvörn getur minnkað ef meira en 36 klst. líða milli töku tveggja taflna. Ef innan við 12 klst. hafa liðið frá því átti að taka töflu, skal taka töfluna sem gleymdist, strax og í ljós kemur að það hefur gleymst og næstu töflu á þeim tíma sem ráð var fyrir gert. Ef taflan sem gleymdist er tekin meira en 12 klst. of seint skal jafnframt nota aðra getnaðarvörn samtímis næstu 7 daga. Ef gleymist að taka töflu í fyrstu vikunni sem lyfið er notað og konan hefur haft samfarir í vikunni áður en töflutaka gleymdist skal hafa mögulega þungun í huga.
Algengasta aukaverkun Cerazette er blæðingaróregla. Allt að 50% kvenna verða fyrir einhvers konar blæðingartruflun. Hjá sumum konum geta blæðingar orðið tíðari en hjá öðrum verða þær sjaldnar eða hætta jafnvel alveg. Meðan kona hefur barn á brjósti eru meiri líkur á því að blæðingar verði ekki.
Frestun tíðablæðinga eða stjórnun á tíðahring er ekki möguleg við notkun Cerazette.
(Texti yfirfarinn í október 2008; Jóna Valdís Ólafsdóttir, lyfjafræðingur).