Hlutverk Lyfju er að stuðla að góðri heilsu og vellíðan. Frá upphafi hefur Lyfja verið brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og boðið upp á ýmsar nýjungar í faglegri þjónustu. Fyrirtækið rekur apótek og heilsubúðir víðs vegar um landið ásamt því að starfrækja lyfjaskömmtun til einstaklinga og stofnana. Hjá fyrirtækinu starfa um 330 manns. Lykillinn að árangri er starfsfólkið okkar og því höfum við það að markmiði að fá hæft fólk til liðs við okkur, skapa eftirsóknarverða vinnustaði þar sem góður starfsandi ríkir og að starfsfólk fái tækifæri til að öðlast faglegan og persónulegan þroska í starfi. Einkunnarorð okkar eru áreiðanleiki, umhyggja og metnaður.
Meðalaldur starfsmanna Lyfju hf er 37 ár og meðalstarfsaldur 2,8 ár. Hjá Lyfju hf starfa um 330 manns í um 225 stöðugildum. Meirihluti starfsmanna eru konur eða 89%. Hlutfall háskóla- og tæknimenntaðra er um 32%.

Þeir sem hafa áhuga á að starfa hjá Lyfju hf eru hvattir til að sækja um laus störf sem auglýst eru hér fyrir neðan eða senda starfsmannastjóra almenna umsókn með upplýsingum um náms- og starfsferil. Atvinnuumsóknir berast starfsmannastjóra og lyfsala þess apóteks sem viðkomandi sækist eftir að vinna í. Umsóknir eru varðveittar í 6 mánuði nema annars sé óskað.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Fylla út umsókn
Eftirfarandi störf eru í boði:
Apótekið Akureyri
Lyfjafræðingur Akureyri
Apótekið leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til starfa í Apótekið á Akureyri.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Lyfjafræðingur annast afgreiðslu lyfseðla auk þess sem hann veitir viðskiptavinum og starfsfólki faglega ráðgjöf.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan lyfjafræðing.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst og er um hlutastarf að ræða.
Í boði er krefjandi starf á skemmtilegum vinnustað.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir
Hallur Guðjónsson starfsmannastjóri í síma 530 3800,. hallur@lyfja.is
Sækja um
Lyfja Sauðárkróki+útibú
Lyfjafræðingur lyfjaútibúi Blönduósi
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til að veita lyfjaútibúi í flokki 1 á Blönduósi forstöðu.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Í starfinu felst m.a. að bera faglega ábyrgð á rekstri lyfjabúðarinnar, annast daglegan rekstur og umsýslu og sjá til þess að unnið sé samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsöluleyfi.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan lyfjafræðing.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf snemma á næsta ári.
Í boði er krefjandi starf á skemmtilegum vinnustað í vaxandi bæjarfélagi.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir
Hallur Guðjónsson starfsmannastjóri, s: 530-3800. hallur@lyfja.is
Sækja um
Lyfja
Lyfjafræðingur Austurlandi
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum lyfjafræðingi til starfa á Egilsstöðum og á Neskaupstað, með aðsetur á Egilsstöðum.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Lyfjafræðingur annast afgreiðslu lyfseðla auk þess sem hann veitir viðskiptavinum og starfsfólki faglega ráðgjöf.
Um er að ræða spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan lyfjafræðing.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. september 2010.
Í boði er krefjandi starf, skemmtilegur vinnustaður og gott vinnuumhverfi.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir
Hallur Guðjónsson, starfsmannastjóri s:530-3800. hallur@lyfja.is
Sækja um