Um Lyfju hf

Um Lyfju hf > Um Lyfju > Framtíðarsýn
Framtíðarsýn
Samkeppni á lyfjamarkaði hefur aukist verulega á síðustu árum og fyrirsjáanlegt er að hún verði áfram mikil. Til að mæta aukinni samkeppni mun Lyfja hf. leggja áherslu á fjölbreytta og góða þjónustu, gott vöruúrval og samkeppnishæft verð.

Við stefnum að eftirfarandi markmiðum:
  • Að vera í forystuhlutverki í rekstri og þróun apóteka og heilsuverslana
  • Að vera í forystu í sérhæfðri þjónustu s.s. lyfjafræðilegri þjónustu, ráðgjöf og fræðslu um heilsu og heilsuvörur
  • Að bjóða almennt samkeppnishæft verð
  • Að bjóða lægsta verð fyrir elli- og örorkulífeyrisþega í Apótekinu 
  • Að standast væntingar viðskiptavina um trausta og faglega þjónustu
  • Að hafa yfir að ráða hæfu og metnaðarfullu starfsfólki sem skapar öfluga liðsheild
  • Að vera í nánu samstarfi við heilbrigðisstéttir, s.s. lækna , hjúkrunarfræðinga sem og sjúklingasamtök um forvarnarstarf og eftirlit með lyfjameðferð