Meðferð persónuupplýsinga
Lyfja hf leggur ríka áherslu á öryggi og trúnað þegar um er að ræða upplýsingar sem snerta einstaklinga sem á einhvern hátt tengjast Lyfju, starfsmenn og viðskiptavini.
Meðferð persónuupplýsinga hlýtur lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Þú getur, neytandi góður, lesið flestar vefsíður okkar án þess að skilja eftir nokkrar persónutengdar upplýsingar um sjálfan þig.
Í þeim tilfellum þar sem þú þarft að skrá nafn þitt, heimilisfang, tölvupóstfang eða aðrar persónutengdar upplýsingar, t.d. vegna starfsumsókna, skuldbindur Lyfja hf sig til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og tryggan hátt og mun ekki miðla þeim á nokkurn hátt til þriðja aðila án samþykkis viðkomandi aðila.
Lyfja hf mun ekki veita þriðja aðila upplýsingar af neinum toga nema að undangengdum dómsúrskurði eða með samþykki viðkomandi aðila.
Á Lyfja.is eru tengingar við aðrar vefsíður. Fyrirtækið frábiður sér allrar ábyrgðar á efni þessra vefsíðna.