
Lyfjafræðileg umsjá hefur þróast víða erlendis, t.d. í Bandaríkjunum og Danmörku, sem samvinna milli læknis, sjúklings og lyfjafræðings um bætta lyfjameðferð sjúklinga. Í langflestum tilfellum vísar þá læknir sjúklingi til lyfjafræðingsins sem fylgist með lyfjainntöku sjúklingsins auk þess að fræða hann um sjúkdóminn og hvernig lyfin vinna. Markmiðið er að gera sjúklinginn ábyrgari og meðvitaðri um eigin heilsu og halda þannig sjúkdómnum betur í skefjum. Lyfja hefur nú sett upp lyfjafræðilega umsjá með ofangreind atriði að leiðarljósi. Við vonumst til að fá góðar undirtektir því reynslan og árangur af þessari þjónustu er mjög góð erlendis. Markmiðið er að sjúkdómar haldist betur í skefjum, sjúkrahúsinnlögnum tengdum lyfjum fækki og lífsgæði sjúklinga aukist.