.jpg)
Beinþéttnimæling er einföld og sársaukalaus rannsókn sem sýnir ástand beina á augabragði.
Boðið er upp á beinþéttnimælingar í röngtentæki hjá Lyfju. Þær eru framkvæmdar í Lyfju Smáratorgi og Lyfju Lágmúla
Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:
1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling -
5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni -
4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði -
3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur -
3.490kr
Blóðþrýstingur (200 kr)
Beinþéttni (1090 kr)
Öndunarmælingar(1090 kr)
Blóðrauðamæling (580 kr)
Súrefnismettun í blóði (580 kr)
Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.
Mæling á blóðfitu og blóðsykri er fastandi mæling.
Hvað er beinþynning? Þegar breytingaskeiðið hefst minnkar framleiðsla líkamans á kvenhormóninu estrógeni. Niðurbrot í beinum verður hraðara og beinin veikjast smám saman. Af þeim sökum eykst hættan á beinbrotum.
Algengustu beinbrot eru: - handleggsbrot (55 ára aldur)
- samanfall í hrygg (65 ára aldur)
- mjaðmabrot (75 ára aldur)
Meira um beinþynningu
hér.