Þjónusta í Lyfju

Þjónusta í Lyfju > Mælingar > Blóðrauðamæling
Blóðrauðamæling
Hemoglobin – Blóðrauði
Blóðrauði kallast efnið sem gerir blóðið rautt og er það nauðsynlegt fyrir flutning súrefnis frá lungum til fruma líkamans. Til að meta ástand rauðra blóðkorna er m.a. mælt hemoglobin og meðalrúmmál rauðra blóðkorna. Skortur á járni, vítamín B12 og/eða fólati getur valdið lækkun á hemóglóbini og breytt rúmmáli blóðkornanna.
B12 og fólat fæst m.a. úr grófu brauði, kjöti og vítamínum. Járnskort má bæta með því að borða járnauðugan mat, td. lifur, lifrapylsu, blóðmör, lifrakæfu, járntöflur og þarf að taka inn c-vítamín til að auka frásog járnsins eða drekka C-vítamínríka drykki/safa.
Blóðrauðasameindin inniheldur járn sem er nauðsynlegt steinefni í daglegu mataræði.
Eðlilegt blóðrauðagildi:
Hjá konum eru eðlileg mörk 118-152 g/L
Hjá körlum eru eðlileg mörk 134-171 g/L
Einkenni sem koma fram við járnskort/blóðleysi er einkum slappleiki, þreyta, svimi og jafnvel mæði, fölvi, höfuðverkur og ör hjartsláttur.
Hverjum er mest hætt við járnskorti:
-Konum á barneignaraldri, einkum konum sem fá miklar blæðingar
-Barnshafandi konum
-Blóðgjöfum
-Öldruðum sem neyta einhæfðrar fæðu
-Einstaklingum með blæðingar frá meltingarvegi td. úr blæðandi magasári
-Áfengissjúklingum
-Einstaklingum sem neyta ekki kjötmetis
-Langtímanotkun ýmissa lyfja getur valdið járnskorti
-Lyf með acetylsalisilsýru (td.aspirin)
-Ákveðin gigtarlyf af NSAID flokki
-Sýklalyfið Tetracyklin
-Etidronat við beinþynningu
-Pencilamin við nýrnasteinum

Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:

1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling - 5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni - 4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði - 3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur - 3.490kr 
    Blóðþrýstingur (200 kr) 
    Beinþéttni (1090 kr) 
    Öndunarmælingar(1090 kr) 
    Blóðrauðamæling (580 kr) 
    Súrefnismettun í blóði (580 kr)

Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.