Hvar er hægt að fá mældan blóðþrýsting? Viðskiptavinir Lyfju geta látið mæla í sér blóðþrýsting í öllum verslunum Lyfju. Blóðþrýstingsmæling kostar 200 kr. Viðskiptavinir ættu að athuga að það er mikilvægt að gefa sér góðan tíma til þess að mælingin verði sem árangursríkust. Það er til að mynda gott að hvílast og sitja í nokkarar mínútur áður en mælingin er framkvæmd. Ýmislegt getur nefnilega haft áhrif á mælinguna, t.d. streita og andleg spenna.
Hvað er blóðþrýstingur? Blóðþrýstingur er eins og nafnið gefur til kynna þrýstingur blóðsins í slagæðum líkamans og nauðsynlegur til að flytja næringu og súrefni til líkamsvefja. Hjartað dælir blóðinu um æðakerfið og blóðþrýstingur ræðst því einkum af afköstum hjartans og viðnámi æðakerfisins. Í einfölduðu máli er blóðrásin ekkert annað en dæla (hjartað) og pípur (æðarnar).
Meira um blóðþrýsting
hér.
Hvers vegna ætti ég að láta mæla blóðþrýstinginn í mér? HJARTAVERND mælir með því að fólk ætti eftir 40 ára aldur að fara reglulega í hjartaeftirlit og fyrr ef ástæða þykir til. Þótt komi í ljós að niðurstöður séu allar innan eðlilegra marka er engu að síður mikilvægt að halda eftirlitinu áfram. Hve oft fólk fer í eftirlit er misjafnt, en eftirfarandi þumalputtareglur eru góðar til viðmiðunar: Heilbrigðir einstaklingar eldir en 40 ára ættu að fara reglulega í þessar mælingar:
En ef ég er þegar í meðferð við of háum blóðþrýstingi? Það er mikilvægt fyrir fólk með háþrýsting að láta mæla sig reglulega enda krefst meðferð við háþrýstingi góðs eftirlits. Þá er ágætt fyrir lækni að hafa fleiri mælingar til viðmiðunar en þær sem hann sér um sjálfur á stofu. Sérhver í fyrrnefndum aldurshóp ætti að láta mæla sig reglulega og muna eftir að skrá hjá sér niðurstöður mælinganna.
Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:
1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling
- 5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni -
4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði -
3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur -
3.490kr
Blóðþrýstingur (200 kr)
Beinþéttni (1090 kr)
Öndunarmælingar(1090 kr)
Blóðrauðamæling (580 kr)
Súrefnismettun í blóði (580 kr)
Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.