Þjónusta í Lyfju

Þjónusta í Lyfju > Mælingar > Öndunarmæling
Öndunarmæling
Öndunarmæling er framkvæmd til að meta starfsemi lungnanna og er mikilvæg í greiningu, meðferð og eftirliti sjúkdóma. Með því að koma reglulega í lungnamælingu er hægt að fylgjast með ástandi lungnanna.

- Öndunarmæling er framkvæmd með því að blásið er í lungnamælitæki. Blása þarf af öllum kröftum samkvæmt leiðbeiningum þess er rannsóknina framkvæmir.

- Niðurstöður eru bornar saman við niðurstöður heilbrigðra einstaklinga af sama kyni, aldri og hæð. Ef niðurstöður eru utan eðlilegra marka er mikilvægt að leita læknis.

Hvenær á að gera lungnamælingar:

- Hjá öllum reykingamönnum yfir 40 ára aldri, jafnvel þótt þeir séu einkennalausir

- Til að fylgjast með árangri meðferðar hjá sjúklingum með lungnasjúkdóma.

- Til að greina atvinnusjúkdóma í öndunarfærum.

- Hjá sjúklingum með lungnaeinkenni, til greiningar lungnasjúkdóma. Einkenni geta meðal annars verið mæði, hósti, andþyngsli eða brjóstverkir.

- Til að greina á hvaða stigi lungnateppusjúkdómar eru þannig að hægt sé að veita bestu meðferð.


Boðið er upp á eftirtaldar mælingar hjá Lyfju:

1. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði, beinþéttni og öndunarmæling - 5.490kr
2. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur, blóðrauði og beinþéttni - 4.890kr
3. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur, blóðþrýstingur og blóðrauði - 3.990kr
4. Blóðfita/kólesteról, blóðsykur og blóðþrýstingur - 3.490kr 
    Blóðþrýstingur (200 kr) 
    Beinþéttni (1090 kr) 
    Öndunarmælingar(1090 kr) 
    Blóðrauðamæling (580 kr) 
    Súrefnismettun í blóði (580 kr)

Mælingar eru framkvæmdar í Lyfju Lágmúla frá kl. 8-15 virka daga og í Lyfju Smáratorgi kl. 8-12 mánud.-fimmt.

Mæling á blóðfitu og blóðsykri er fastandi mæling.

Vefsíður:
Astma- og ofnæmisvefur GlaxsmithKline á Íslandi
www.reyklaus.is
Ráðgjöf í reykbindindi - grænt númer -